Ályktun frá stjórn KRFÍ vegna skattagreiðslna sem undirstrika kynbundinn launamun

Skrá Ríkisskattstjóra yfir álögð opinber gjöld á skattgreiðendur speglar enn og aftur þann mikla kynbundna launamun sem er látinn viðgangast. Nýlegar rannsóknir staðfesta einnig allt að 16% launamun sem verður eingöngu skýrður út frá kynferði. Stjórn Kvenréttindafélags Íslands telur að tekjuójöfnuðurinn gefi skýrt til kynna að enn sé langt í land hvað jafnrétti kynjanna varðar.

Launamunurinn er óviðunandi og skorar Kvenréttindafélag Íslands á ríkisstjórn, sveitarstjórnir og fyrirtæki að leiðrétta þetta misrétti.

Hallveigarstöðum, 14. ágúst 2008