Umsóknir til Jafnréttissjóðs

Starfræktur er sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður, og er tilgangur hans að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.

Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm. Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vef forsætisráðuneytis (forsaetisraduneyti.is/afgreidsla/sjodir/jafnrettissjodur). Umsóknarfrestur er til 1. september 2008 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2008.