Fögur fyrirheit – Kvennasáttmáli SÞ 30 ára

Föstudaginn 27. mars kl. 14:00-16:00 verður dagskrá á Hótel Borg í Reykjavík í tilefni af 30 ára kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Dagskráin er öllum opin og er frítt inn.

  • Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu: Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna: Sátt um samfélagsbreytingar.
  • Brynhildur Flóvenz, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands: Eru konur ekki menn? Mikilvægi sértækra mannréttindasamninga á borð við Kvennasáttmálann.
  • Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands: Skuggaskýrslur: Aðhaldshlutverk frjálsra félagasamtaka.
  • Rachael Lorna Johnsone, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri: Going Private: State responsibility for domestic violence under the CEDAW.
  • Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi: Hvers vegna þarf kvennasáttmála? Myndasýning.

Fundarstjóri Gréta Gunnarsdóttir, sviðsstjóri í utanríkisráðuneytinu.

Að fundinum standa: KRFÍ, RIKK, UNIFEM á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Janfréttisstofa, Femínistafélag Íslands, Kvennaathvarfið og Jafnréttisráð.