Konum fjölgar á Alþingi

KRFÍ fagnar því að meirihluti flokkanna sem nú taka sæti á Alþingi eru með jafna kynjaskiptingu í þingflokkum sínum. Þetta eru Samfylking, Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Borgarahreyfingin. Einnig fagnar KRFÍ því sögulega háa hlutfalli kvenna á Alþingi en tæp 43% þeirra sem nú taka þar sæti eru konur.

Undanfarin ár hefur KRFÍ ítrekað bent á það að flokkarnir beri sjálfir ábyrgð á jöfnuði kynjanna innan síns flokks. Það er því ánægjulegt að sjá að nokkrir flokkanna hafa tekið þessa ábyrgð alvarlega eins og kom í ljós í jafnri kynjaskiptingu minnihlutastjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Ísland skipar sér nú í efstu sæti ríkja heims hvað varðar jafna kynjaskiptingu á þingi og sýnir með því fram á að Íslendingar taka jafnréttismálin alvarlega.