spicesVerið velkomin í Þjóðlegt eldhús á Hallveigarstöðum næsta fimmtudag, 3. nóvember, kl. 19.00. Að þessu sinni verður matur frá Dóminíska lýðveldinu kynntur.

Allir eru velkomnir að vera með á matarkvöldunum. Skráning fer fram á netfanginu magdalenamejia1 [hjá] hotmail.com.

800 kr. greiðast við innganginn og er í þeim innifalinn matur, kaffi og vatn. Gos og léttvín er hægt að kaupa gegn vægu verði.

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Kvenréttindafélag Íslands bjóða upp á Þjóðlegt eldhús, þar sem við eldum saman góðan, framandi og freistandi mat frá mismunandi heimshornum. Kynnt verður ný matargerð, farið í notkun á framandi kryddjurtum og sagt frá matarmenningu ýmissa þjóða í skemmtilegum félagsskap. Konur úr samtökunum kynna landið sitt og menningu í gegnum mat, sögur og myndir.