Hátíðardagskrá 19. júní 2015

Félög kvenna að Hallveigarstöðum bjóða ykkur velkomin í hátíðardagskrá föstudaginn 19. júní næstkomandi, þar sem við fögnum því að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningarétt.

Þema dagskrárinnar er: „Félög kvenna fyrr og nú“.

Húsið opnar kl. 13.30. Boðið verður upp á súpu og brauð.
Dagskráin hefst svo stundvíslega kl. 14.00.

Dagskrá:

  • Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, flytur kveðju og stýrir fundi
  • Una María Óskarsdóttir, forseti Kvenfélagasambands Íslands, ávarpar fundinn
  • Siv Friðleifsdóttir, fyrrv. ráðherra, flytur ávarp: Pilsaþytur kvenfélaganna og kosningarétturinn
  • Guðrún Ebba Ólafsdóttir, stjórnarkona í Rótinni, flytur ávarp: Byltingin dafnar í félögum kvenna
  • Vigdís Fríða Þorvaldsdóttir, stjórnarkona í Kynveru og stofnandi Femínistafélags Framhaldsskóla Suðurlands, flytur ávarp: Femínismi til framtíðar

 

Við viljum vekja athygli á því að fjöldi annarra viðburða er haldinn í Reykjavík og um land allt í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttarins.

Hægt er að sjá dagskrá yfir viðburði dagsins í Reykjavík hér.

Einnig er sérstök hátíðardagskrá á Akureyri, Hafnarfirði, Höfn í Hornafirði, Seltjarnarnes og Vestmannaeyjum.