Skýrsla til Sameinuðu þjóðanna vegna mannréttindamála á Íslandi

UPR-unKvenréttindafélag Íslands hefur ásamt Mannréttindaskrifstofu Íslands, Stígamótum, Kvennaráðgjöfinni og Amnesty á Íslandi skilað inn skuggaskýrslu til Sameinðu þjóðanna um framkvæmd stjórnmála á mannréttindamálum á Íslandi.

Þessi skuggaskýrsla var skrifuð sem hluti af reglubundnu eftirliti Sameinuðu þjóðanna um mannréttindamál (Universal Periodic Review – UPR), en ríki heims gangast undir þetta eftirlit á fjögurra ára fresti.

Ísland verður tekið fyrir á þessum eftirlitsfundi í október 2016, og er þessari skuggaskýrslu ætlað að gefa nefndinni óháð mat frjálsra félagasamtaka á framkvæmd stjórnvalda í mannréttindamálum hér á landi.

Smellið hér til að lesa skýrsluna.