Veggir úr sögu kvenna: farandsýning

Jafnréttisdagar eru nú haldnir áttunda árið í röð í Háskóla Íslands. Að þessu sinni hefst dagskráin mánudaginn 10. október og lýkur föstudaginn 21. október.

Í tilefni daganna hefur Kvenréttindafélag Íslands lánað Háskólanum sýninguna Veggir úr sögu kvenna þar sem sagt er frá jafnréttisbaráttu kvenna síðustu hundrað árin.