Kvenréttindafélag Íslands boðar til aðalfundar miðvikudaginn 31. maí 2017 kl. 17:00. Fundurinn er haldinn að Hallveigarstöðum, Túngötu 14 í Reykjavík.

Ársskýrslu Kvenréttindafélagsins er að finna hér.

Dagskrá fundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Lögð fram skýrsla stjórnar með kafla um störf nefnda og stjórna
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins
  4. Ákveðið félagsgjald, sbr. 7. gr
  5. Tillögur um lagabreytingar, ef koma fram
  6. Kosinn formaður, sbr. 5 gr.
  7. Kosin stjórn, sbr. 5. gr.
  8. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga
  9. Kosin stjórn Menningar-og minningarsjóðs kvenna, sbr. 8. gr
  10. Valdir fulltrúar í nefndir og ráð sem KRFÍ á aðild að
  11. Önnur mál

 

Á árinu er kosið um formann til tveggja ára, þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og þrjá varamenn til eins árs í stjórn Kvenréttindafélagsins, fimm stjórnarmenn og fimm varamenn í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna, sem og fulltrúa Kvenréttindafélagsins í Mannréttindaskrifstofu Íslands, Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir og Landvernd.

Allir skuldlausir félagar hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundinum.

Áhugasamir um að bjóða sig fram til stjórnar Kvenréttindafélags Íslands eða sem fulltrúar félagsins í nefndum og ráðum, hafi samband við félagið í netfang postur(@)kvenrettindafelag.is, í síðasta lagi 24. maí.

Athugið, hjólastólalyfta er í húsinu sem tekur 225 kg. Látið vita fyrir 24. maí hvort að þörf sé á táknmálstúlkun. Kaffiveitingar í boði.

Á fundinum verða lagðar fram eftirfarandi tillögur til breytingar á lögum Kvenréttindafélags Íslands:

Breytingar á 2. gr.

Við 2. gr. bætist:

Félagið leggur áherslu á mannréttindi í víðum skilningi og vinnur gegn hvers konar mismunun.

Í stað orðsins félagsfundi í niðurlagi greinarinnar kemur orðið aðalfundi.

Greinin hljóði svo (breytingar undirstrikaðar):

Markmið félagsins er að vinna að kvenréttindum og jafnri stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Félagið leggur áherslu á mannréttindi í víðum skilningi og vinnur gegn hvers konar mismunun. Félagið vinnur samkvæmt stefnuskrá sem samþykkt er á aðalfundi.

Breytingar á 5. grein

Við 5. gr. bætist:

Stjórn fer með ákvörðunar- og framkvæmdavald á milli aðalfunda.

Greinin hljóði svo (breytingar undirstrikaðar):

Aðalfundur kýs formann og sex stjórnarmenn til tveggja ára í senn. Formann og þrjá stjórnarmenn skal kjósa á ári með oddatölu og þrjá stjórnarmenn skal kjósa á ári með sléttri tölu. Aðalfundur kýs einnig þrjá varamenn í stjórn til eins árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum og setur sér starfsreglur. Formaður og stjórn eru málsvari félagsins út á við. Stjórn fer með ákvörðunar- og framkvæmdavald á milli aðalfunda.

Breytingar á 6. gr.

Í stað orðsins marslok komi orðin 15. júní.

Við greinina bætist:

þar á meðal í nefndir og ráð sem KRFÍ á aðild að,

Greinin hljóði svo (breytingar undirstrikaðar):

Aðalfundur skal haldinn fyrir 15. júní ár hvert og skal boða félagsmenn, skv. netfangaskrá félagsins og heimasíðu þess, með minnst tveggja vikna fyrirvara. Með fundarboði skal senda tillögur um lagabreytingar, ef einhverjar eru. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað. Framboð til stjórnarsetu skal berast til starfandi stjórnar viku fyrir boðaðan aðalfund. Kosningar eru bundnar og leynilegar ef stungið er upp á fleirum en kjósa skal. Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi, þar á meðal í nefndir og ráð sem KRFÍ á aðild að, hafa aðeins skuldlausir félagsmenn.

Breytingar á 7. gr.

Orðin Gjalddagi árgjalda er 15. júlí falli brott.

Greinin hljóði svo:

Aðalfundur ákveður félagsgjöld. Greiði félagsmenn eða aðildarfélög ekki gjöld sín í samfleytt 4 ár er heimilt að strika nöfn þeirra út af félagaskrá.

Núgildandi lög Kvenréttindafélagsins er að finna á vefsíðu félagsins, hér.