Kvenréttindafélag Íslands skorar á þingmenn að tryggja jöfn kynjahlutföll í ríkisstjórn … í fjórða skipti á tæpu ári

Kvenréttindafélag Íslands ítrekar áskorun sína til alþingismanna sem fá það verkefni að mynda nýja ríkisstjórn að tryggja að jöfn kynjahlutföll séu á ráðherrastólum og að jafnréttismál verði sett í forgang við myndun nýrrar ríkisstjórnar.

Kvenréttindafélagið hvetur ennfremur þingflokka Alþingis til að hafa jafnréttissjónarmið ávallt í huga í starfi sínu á komandi Alþingi, að gæta þess að tilnefna konur og karla til jafns í þingnefndir og tryggja jöfn kynjahlutföll í opinberum nefndum og ráðum.

Kvenréttindafélagið skorar á fulltrúa flokkanna sem taka þátt í stjórnarmyndun, sem og þingheim allan, að hafa mannréttindi að leiðarljósi og sýna í verki að ekkert umburðarlyndi ríkir fyrir kynbundnu ofbeldi eða samtryggingu sem nær einungis yfir útvalda. Umræða um ástæðu þess að síðasta ríkisstjórn féll má ekki einungis hvíla á herðum þolenda, hana ber að taka á æðstu stöðum samfélagsins.

Þetta er nú í fjórða skipti á tæpu ári sem Kvenréttindafélagið hefur þurft að senda frá sér hvatningu til stjórnmálaflokka að tryggja kynjajafnrétti í stjórnarmyndun. Við bindum vonir við að mynduð verði sterk ríkisstjórn sem hefur jafnrétti kynjanna að leiðarljósi í öllu starfi og stefnumótun. Kynjajafnrétti er grundvöllur hagsældar og velferðar og án valdeflingar og þátttöku kvenna á opinberum vettvangi er ekki hægt að uppfylla markmið Sameinuðu þjóðanna um frið, jafnrétti og lýðræði.

Hallveigarstaðir, 14. nóvember 2017

1 Response