Félögum í Kvenréttindafélagi Íslands er boðið að taka þátt í fundi þar sem ræddar verða áherslur í stefnu félagsins, á Kynjaþingi, 3. mars kl. 12 í Tækniskólanum á Skólavörðuholti, stofu 404.

Fundurinn er haldinn í þjóðfundarstíl. Þátttakendum er skipt upp á borð þar sem þeir leggja fram sínar hugmyndir um hvaða áherslur skuli vera í starfi og stefnu félagsins.

Í lok fundar draga borðstjórar saman helstu áherslur sem fram komu í umræðum á borðunum og kynna fundargestum. Hugmyndirnar sem fram koma verða notaðar til hliðsjónar við vinnslu á nýjum drögum að stefnuskrá félagsins sem stjórn Kvenréttindafélagsins mun leggja fram á aðalfundi í vor.

Hægt er að lesa núverandi stefnuskrá Kvenréttindafélags hér: http://kvenrettindafelag.is/um-okkur/stefnuskra/

Mikil gróska hefur verið í starfi Kvenréttindafélagsins undanfarin misseri en við viljum alltaf bæta við okkur öflugum félögum sem vilja leggja okkur lið í jafnréttisbaráttunni.

Núna er tækifæri til að hafa áhrif!

Athugið, fundurinn er lokaður öðrum en skráðum félögum í Kvenréttindafélagi Íslands en hægt er að gerast félagi á staðnum.