Hvað stendur á þínu kvennafrísspjaldi?

Hvað á að standa á ÞÍNU kröfuspjaldi þann 24. október 2018 þegar við göngum út kl. 14:55 og hittumst á Arnarhóli og krefjumst kjarajafnréttis og að konur séu óhultar heima og óhultar í vinnu!

Komdu í góðan hóp og gerðu þitt spjald klárt. Við hittumst í húsnæði BSRB, Grettisgötu 89, sunnudaginn 14. október kl. 14-16 og skemmtum okkur við að setja kröfurnar okkar í orð og myndir. Spjöld og málning á svæðinu!

Breytum ekki konum, breytum samfélaginu! #MeToo