Kvenréttindafélag Íslands boðar til aðalfundar mánudaginn 6. maí 2019 kl. 16:00. Fundurinn er haldinn að Hallveigarstöðum, Túngötu 14 í Reykjavík.

Ársskýrslu Kvenréttindafélagsins 2018 er að finna hér.

Á fundinum verða lagðar fram tillögur til breytinga á lögum Kvenréttindafélags Íslands sem hægt er að lesa hér. Núgildandi lög Kvenréttindafélagsins er að finna á vefsíðu félagsins, hér.

Dagskrá fundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Lögð fram skýrsla stjórnar með kafla um störf nefnda og stjórna
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins
  4. Ákveðið félagsgjald, sbr. 7. gr
  5. Tillögur um lagabreytingar [lesið tillögu að nýjum lögum Kvenréttindafélagsins hér]
  6. Kosinn formaður, sbr. 5 gr.
  7. Kosin stjórn, sbr. 5. gr.
  8. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga
  9. Kosin stjórn Menningar-og minningarsjóðs kvenna, sbr. 8. gr
  10. Valdir fulltrúar í nefndir og ráð sem KRFÍ á aðild að
  11. Önnur mál
    1. Ný aðildarfélög að Kvenréttindafélaginu, W.O.M.E.N. in Iceland og Druslubækur og doðrantar

Á fundinum er kosið um formann Kvenréttindafélags Íslands til tveggja ára, þrjá stjórnarmenn til tveggja ára og þrjá varamenn til eins árs í stjórn Kvenréttindafélagsins, fimm stjórnarmenn og fimm varamenn í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna, sem og tvo skoðunarmenn reikninga, einn fulltrúa Kvenréttindafélagsins í Almannaheill, og tvo fulltrúa á aðalfundi EWL.

Áhugasamir að bjóða sig fram til trúnaðarstarfa fyrir Kvenréttindafélag Íslands, tilkynnið framboð hér: https://forms.gle/PWpEXmwXgPyGrdpo8 eða með því að hafa samband við félagið í netfang postur@kvenrettindafelag.is, í síðasta lagi 29. apríl 2019.

Allir skuldlausir félagar hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundinum. Kröfur fyrir félagsgjöldum 20182019 hafa verið stofnaðar í netbanka.