Siðareglur Kvenréttindafélags Íslands

Kvenréttindafélag Íslands er aðili að Almannaheill – samtökum þriðja geirans.

Kvenréttindafélag Íslands hefur skuldbundið sig til að starfa samkvæmt siðareglum sem samþykktar voru á aðalfundi Almannaheilla 2. júní 2022.

Siðareglur Almannaheilla

TILGANGUR SIÐAREGLNA

  • Að veita aðilum Almannaheilla stuðning í veigamiklu hlutverki sínu að vinna að almannaheill í gegnum mannrækt, heilsuvernd og -eflingu, umhverfisvernd og annað sem aðilar að samtökunum standa fyrir.
  • Að styrkja ímynd aðila Almannaheilla, viðhalda og auka traust almennings á starfi þeirra með því að upplýsa um gildi sem móta starfið.
  • Að efla gegnsæi, góða stjórnarhætti og faglegt starf í þágu almennings.
  • Að veita stjórn og starfsmönnum viðmið um breytni og þá faglegu ábyrgð sem á þeim hvílir umfram lagalegar skyldur.

ÁBYRGÐ GAGNVART ALMENNINGI, FJÖLMIÐLUM OG SAMFÉLAGI

  • Upplýsingar sem aðilar Almannaheilla veita skulu vera áreiðanlegar og gefa rétta mynd og samhengi þess sem verið er að kynna. Tölfræði og hugtök skulu vel skilgreind og stuðla að skýrum og réttum fréttaflutningi til almennings.
  • Aðilar Almannaheilla starfa sjálfstætt að markmiðum sínum, með hagsmuni almennings, félagsmanna, skjólstæðinga og umbjóðenda sinna að leiðarljósi, án þrýstings frá eða skuldbindinga gagnvart stjórnvöldum, styrktaraðilum eða öðrum utanaðkomandi aðilum.
  • Aðilar að Almannaheillum hafa umhverfissjónarmið ávallt að leiðarljósi í rekstri sínum og sýna með því gott fordæmi í umgengni við náttúru og samfélag.

ÁBYRGÐ GAGNVART SKJÓLSTÆÐINGUM, FÉLAGSMÖNNUM, NOTENDUM, UMBJÓÐENDUM OG STYRKTARAÐILUM

  • Aðilar að Almannaheillum bera ábyrgð á starfi sínu og sýna skjólstæðingum, félagsmönnum, notendum þjónustu, umbjóðendum og öðrum virðingu og trúnað.
  • Aðilar Almannaheilla geta sett sér sértækari siðareglur í samræmi við starfsvettvang sinn.
  • Áreiðanlegar og skýrar upplýsingar eru veittar fúslega og án óþarfa tafa. Notendum þjónustu eru gefnar aðgengilegar upplýsingar um alla þætti hennar og þeim auðveldað að nota hana.
  • Aðilar Almannaheilla mismuna ekki þeim sem þeir eiga í samskiptum við hvorki á grunni þjóðernis, kyns, kynhneigðar, fötlunar, trúar, skoðana eða annars sem er ólíkt með fólki. Almannaheill og aðilar að samtökunum misnota ekki stöðu sína sem veitendur þjónustu / gæða til að misbjóða eða svíkja traust þeirra sem til þeirra sækja.

ÁBYRGÐ STJÓRNARMANNA, STARFSFÓLKS OG SJÁLFBOÐALIÐA

  • Stjórnarmenn, starfsfólk og sjálfboðaliðar halda tryggð við markmið og orðstír Almannaheilla.
  • Stjórnarmenn, starfsfólk og sjálfboðaliðar Almannaheilla nýta ekki trúnaðarupplýsingar sjálfum sér til framdráttar.
  • Stjórnarmenn, starfsfólk og sjálfboðaliðar Almannaheilla veita ekki fyrirgreiðslu vegna persónulegra tengsla eða vensla.
  • Stjórnarmenn, starfsfólk og sjálfboðaliðar Almannaheilla, og aðila að þeim, virða störf annarra félaga og samtaka og kynna sig í krafti eigin starfs.
  • Stjórnarmenn, starfsfólk og sjálfboðaliðarAlmannaheilla, og aðila að þeim, sýna hver öðrum virðingu, samstarfsvilja og stuðning og stuðla að framgangi verkefna.

ÁBYRG FJÁRMÁL

  • Meðferð fjármuna er samkvæmt viðurkenndum bókhalds- og reikningsskilavenjum
  • og endurskoðun reikninga í höndum kjörinna skoðunarmanna og/eða löggiltra endurskoðenda.
  • Upplýsingar um fjárhag og rekstur eru gegnsæjar, settar fram á einfaldan og skýran máta.
  • Ávallt er skýrt til hvers fjár er aflað og tilskilin leyfi fyrir söfnunum fengin.
  • Ágóðahlutur af hvers kyns sölu og kostnaðarhlutfall við fjáraflanir liggja fyrir
  • og eru aðgengileg þeim sem þess óska.
  • Aðilar að Almannaheillum gæta ráðvendni og taka ekki við styrkjum frá aðilum sem með framgöngu sinni eða starfsemi, vinna gegn baráttumálum þeirra.
  • Aðilar að Almannaheillum afla ekki fjár með ósiðlegum hætti.
  • Starfsfólk gætir ráðdeildar í daglegum rekstri og við meðferð fjármuna félagsins.

AÐILD AÐ ALMANNAHEILLUM

  • Aðilar að Almannaheillum eru skráð félög eða samtök með stjórn og lög / samþykktir um starfsemi sína.
  • Siðareglur þessar birtast á heimasíðu Almannaheilla og aðildarfélaga.
  • Starfsmönnum og sjálfboðaliðum Almannaheilla, þar með talið stjórnar- og nefndarmönnum, eru kynntar þessar reglur í upphafi starfs síns fyrir félagið. Þeir staðfesta með undirskrift sinni að þeir fallist á að starfa eftir reglunum.

VIÐBRÖGÐ VIÐ BROTUM Á SIÐAREGLUM

  • Vakni grunur um eða verði ljóst að siðareglur þessar hafi verið brotnar má hver sem þess verður var, tilkynna það stjórn Almannaheilla. Skal stjórnin taka málið til umfjöllunar og afgreiðslu með hliðsjón af lögum samtakanna.
  • Brjóti aðili að Almannaheillum gegn siðareglum þessum skal hann í samráði við stjórn Almannaheilla bæta fyrir brotið eins og hægt er með því að birta, leiðrétta upplýsingar eða gera aðra þá bragarbót sem þurfa þykir.
  • Þess skal gætt að sá sem leggur fram upplýsingar um ætlað brot á siðareglunum, beri ekki skaða af.

Samþykkt á aðalfundi Almannaheilla 19. maí 2010

Siðareglur