Rut Einarsdóttir

Rut Einarsdóttir

Rut er fædd og uppalin á Patreksfirði og lauk grunnnámi í nýsköpun og hagfræði við Ritsumeikan Asia Pacific háskóla í Japan. Síðan þá hefur hún starfað í þágu mannréttinda við ýmis félagasamtök og í sjálfboðavinnu um heim allan, m.a. við afvopnun á heimsvísu, valdeflingu ungmenna og aukið jafnrétti. Þá hefur hún m.a. setið í ráðgjafaráði Evrópuráðs um ungt fólk, haldið vinnustofur um borgaraleg réttindi víða í Evrópu og talað á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um viðskipti og þróun. Rut situr í stjórn Kvenréttindafélags Íslands og er fulltrúi félagsins í Mannréttindaskrifstofunni þar sem hún situr nú sem varaformaður. 
 
Rut er núna búsett í Reykjavík og vinnur að því ljúka mastersnámi í ofbeldis-, átaka- og þróunarfræðum við SOAS háskólann í London ásamt því að kenna innflytjendum íslensku.