Í dag fagnar Kvenréttindafélagið 118 ára afmæli sínu!

Undanfarið hefur félagið beint sjónum sínum að ungum konum og kvárum með þátttöku sinni í jafnréttisverkefninu Femme empower. Verkefnið hefur sem markmið að skapa vettvang fyrir ungar konur og kvára með mismunandi bakgrunn á aldrinum 18-30 ára til að láta sig jafnréttis- og manréttindamál varða og láta til sín taka.

Verkefnið fer fram með þátttöku ungra kvenna og kvára í fimm löndum að Íslandi meðtöldu. Hin löndin eru Litháen, Portúgal, Pólland og Rúmenía.

Dagana 22. til 27. janúar var 12 manna hópur frá hinum þátttökulöndunum í fræðsluferð hérlendis til að kynna sér árangur og áskoranir jafnréttis- og manréttindamála á Íslandi.

Fyrir utan tækifærið fyrir Femme Empower þátttakendurnar til að hitta hvern annan þá var einstakt fyrir þau að eiga fundi með fjölda þeirra sem hafa haldið og halda baráttu fólks fyrir jafnrétti, kven- og mannréttindum á Íslandi á lofti með framlagi sínu.

Þau sem gerðu Femme Empower fræðsluferðina að draumaferð:

  • Rakel Adolphsdóttir, forstöðukona Kvennasögusafnsins. Mikilvægi varðveislu frumheimilda í máli og myndum sem lúta að veruleika og sögu kvenna almennt og fyrir réttindum sínum og jafnrétti fyrir kvenréttinda- og jafnréttisbaráttuna.
  • Þorgerður Einarsdóttir og Dr. Unnur Dís Skaptadóttir, Háskóli Íslands. Gildi þverfræðilegrar kynjafræði í sjálfu sér og fyrir aðrar fræðigreinar fyrir inngildingu allra sjónarhóla og horna í akademísku starfi og fyrir stefnumótun.
  • Hjálmar Gunnar Sigmarsson, ráðgjafi, Stígamót. Stuðningur við brotaþola kynferðisofbeldis og forvarnir m.a. með áherslu á samþykki og persónuleg mörk. Verkefnið Sjúk Ást rokkar!
  • Guðrún Agnarsdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Kristín Ásgeirsdóttir f.h. stofnfélaga Kvennalistans og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sem fulltrúi þeirra kvenna sem gengur til liðs við Kvennalistann eftir stofnun. Markmið með stofnun Kvennalistans og baráttuleiðirnar fyrir kvenréttindum og jafnrétti.  Það veitti ungu gestunum mikinn innblástur að heyra af baráttu Kvennalistans fyrir réttindum kvenna og jafnrétti sem átti sér stað áður en þau fæddust!
  • Sara McMahon, landsnefnd UN Women, og fulltrúar ungmennaráðs hennar. Hlutverk UN Women og landsnefnda við að bæta réttindi og stöðu kvenna á alþjóðavísu.
  • Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal, formaður ungra athafnakvenna. Jafnrétti sem ein forsenda framþróunar í samfélaginu.
  • Tómas Leifsson, fræðslustjóri Alþingis. Saga Alþingis – saga kvenna á þingi og í ríkisstjórn.
  • Rán Ingvarsdóttir, lögfræðingur, skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála í dómsmálaráðuneytinu. Hlutverk skrifstofunnar, Jafnréttisstofu og Kærunefndar jafnréttismála og helstu leiðir að jafnréttismarkmiðum sbr. jafnlaunavottun og jafnréttisáætlun.
  • Bergrún Andradóttir, skrifstofustýra Samtakanna 78 og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, ein stofnenda Trans Íslands og baráttukona fyrir réttindum transfólks. Saga baráttu hinsegin fólks, samtakamáttur og aðrar aðferðir við að ná fram auknum réttindum og umbótum.
  • Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Þjónusta við þolendur ofbeldis í nánum samböndum og börn þeirra, nálgun og fræðslustarf.
  • Guðný Bjarnadóttir, Ólöf Tara Harðardóttir og María Hjálmtýsdóttir, Vitund – Samtök gegn kynbundnu ofbeldi. Persónuleg reynsla brotaþola og miðlun hennar – afl í þágu afhjúpunar á gerendum og brotalama í kerfinu og þar með kröfum um úrbætur.
  • Mouna Nasr, formaður W.O.M.E.N. – Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, Najlaa Attaallah, meðstjórnandi og Amal Tamimi, ein stofnenda samtakanna árið 2003. Tilurð samtakanna, sagan og staðan í dag: árangur, áskoranir og aðgerðir til úrbóta.
  • Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, önnur tveggja stofnanda Nordic Digital Rights and Equality Foundation – NORDREF. Afkimar alnetsins sem athvörf fyrir karla sem hata konur, staður til að koma á framfæri og miðla eitraðri karlmennsku og kvenfyrirlitningu oftar en ekki nafnlaust og til að fremja stafrænt kynferðisofbeldi. Veruleikinn og hvað er til ráða.

Fyrir utan fræðsluna var haldin sýning á heimildarmyndinni um Kvennafrídaginn 1975 – The Day Iceland Stood Still – og pizzupartý á eftir fyrir Femme Empower hópinn, nemendur Alþjóðlega jafnréttisskólans og fleira ungt fólk sem var boðið sér að kostnaðarlausu.

Sýningin var haldin í samstarfi við Hrafnhildi Gunnarsdóttur, framleiðanda myndarinnar, og Irmu Erlingsdóttur, forstöðukona Alþjóðlega jafnréttisskólans GRÓ-GEST. Kvenréttindafélagið vill þakka þeim ásamt Svanhildi Ástþórsdóttur, Guðrúnu Eysteinsdóttur og Thomas Brorsen Smidt, starfsfólki jafnréttisskólans, kærlega fyrir frábært samstarf!

Að lokum vill Kvenréttindafélagið þakka öllum fyrir örlætið – það að gefa sér tíma til að koma og ræða réttinda- og jafnréttismál kvenna og kvára við Femme Empower hópinn. Þúsund þakkir!

Aðrar fréttir