Reykjavík Global Forum

20182022 er Reykjavík Global Forum, heimsþing kvenleiðtoga, haldið á Íslandi og er Kvenréttindafélag Íslands samstarfsaðili að skipulagningu þingsins.

Ársþing WPL - Women Political Leaders var haldið í Hörpu 28.-30. nóvember 2017.
Ársþing WPL – Women Political Leaders var haldið í Hörpu 28.-30. nóvember 2017. Mynd: Flickr / Women Political Leaders.

Ríkisstjórn Íslands og Alþingi hafa gert samkomulag við WPL  Women Political Leaders um að efna til heimsþings kvenleiðtoga. Heimsþingið verður haldið í Hörpu í Reykjavík árlega í nóvember frá árinu 2018 til ársins 2021.

„WE CAN DO IT“

Ísland hefur í níu ár mælst fremst meðal þjóða heims þegar kemur að stöðu kvenna og því talið að Ísland væri góður staður til að efna til alþjóðlegs samtals kvenleiðtoga um jafnrétti, breytingar og framtíðina. Yfirskrift heimsþinganna næstu fjögur árin verður WE CAN DO IT sem vísar til þess að hægt sé að ná fram breytingum og stuðla að betri heimi með því að tryggja aðkomu kvenna og karla að ákvarðanatöku, stefnumótun og forystu.

Auk WPL  Women Political Leaders, Global Forum og íslenskra stjórnvalda eru samstarfsaðilar Kvenréttindafélag Íslands, UN Women á Íslandi, Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík. Sérstakir bakhjarlar Heimsþings kvenleiðtoga eru fyrirtækin Icelandair, Íslandsbanki, Landsvirkjun, Eimskip, HB Grandi, Marel, Valitor, Alcoa, EFLA verkfræðistofa, Deloitte og Capacent.