Trans Ísland

Trans-Ísland var stofnað árið 2007 og hefur verið starfrækt síðan þá. Félagið eru stuðnings- og baráttu samtök fyrir trans fólk á Íslandi og hefur í gegnum tíðina verið helstu málsvari trans fólks á Íslandi.

Félagið heldur úti mánaðarlega fundi og hittast oftast í húsnæði Samtakanna ’78 á Suðurgötu 3. Viðburðir eru auglýstir á Facebook síðu félagsins. Öll þau sem að eru í hugleiðingum, vantar fræðslu eða langar að kynnast öðru trans fólki er velkomið að mæta. Félagið tekur einnig virkan þátt í Hinsegin dögum og heldur minningardag trans fólks ár hvert.

Trans Ísland gekk í Kvenréttindafélag Íslands árið 2020.