Velkomin á Hallveigarstaði 19. júní!

Við höldum upp á kvenréttindadaginn miðvikudaginn 19. júní á Hallveigarstöðum kl. 17:00

tea-partyDagskrá:
Una María Óskarsdóttir, forseti Kvenfélagasamband Íslands, ávarpar fundinn
Steinunn Stefánsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, ávarpar fundinn
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpar fundinn
Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, ávarpar fundinn
Ísold Uggadóttir og Hrönn Kristinsdóttir ávarpa fundinn fyrir hönd WIFT, félags kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi
Kaffiveitingar og spjall


Blómsveigur lagður að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur kl. 16:00

Þeir sem vilja byrja daginn snemma, þá verður lagður blómsveigur frá Reykvíkingum að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur fyrr um daginn. Gengið verðu fylktu liði frá Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 16:00 að leiði Bríetar í Hólavallakirkjugarði. Þar verða flutt tónlistaratriði og stutt ávarp. Að athöfn lokinni verður gengið að Hallveigarstöðum þar sem Kvenréttindafélagið og Kvenfélagasambandið bjóða til kaffisamsætis.
Kvennamessa í Laugardalnum kl. 20:00

Kvennakirkjan, Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands bjóða ykkur velkomin í kvennamessu við Þvottalaugarnar í Laugardalnum kl. 20 þann 19. júní.

Næsta guðþjónusta Kvennakirkjunnar verður við Þvottalaugarnar í Laugardal miðvikudaginn 19. júní klukkan 20. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir predikar.Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng, Ásdís Þórðardóttir leikur á trompet og Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.