Jafnréttisstofa boðar til málþings um stöðu og framtíð kvennabaráttunnar fimmtudaginn 31. ágúst frá kl. 13.30 til 16.30, í Veröld – húsi Vigdísar Finnbogadóttur. Málþingið er haldið til heiðurs Kristínar Ástgeirsdóttur sem lætur af störfum sem framkvæmdastýra Jafnréttisstofu eftir tíu ár.

Fríða Rós Valdimarsdóttir ávarpar fundinn fyrir hönd Kvenréttindafélags Íslands.