Næsta laugardag 2. nóvember er haldið Kynjaþing 2019, samráðsvettvangur samtaka sem starfa að jafnrétti og mannréttindum. Þingið er haldið í Norræna húsinu og hefst dagskrá klukkan 13:00.

Ókeypis aðgangur er að kynjaþingi og öll velkomin.

Fjöldamörg samtök standa fyrir viðburðum á Kynjaþingi: Ada – hagsmunafélag kvenna í upplýsingatækni, ASÍ, Dziewuchy Islandia, Femínistafélag HÍ, Femínísk fjármál, Jafnréttisnefnd SHÍ, Kona er nefnd, Kvennaathvarfið, Kvennahreyfing ÖBÍ, Kvennasögusafn Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Rótin, RVK Feminist Film Festival, Samtökin ’78, Sigrún hannyrðapönkari, SÍBS, Stelpur rokka!, Trans Ísland, UAK og W.O.M.E.N. in Iceland.

Dagskráin er fjölbreytt. Á þinginu er rætt um pólsk-íslenskan femínisma, um tengsl kyns og heilsu, sagt frá nýjustu rannsóknum um ofbeldi á Íslandi, fjallað um femínísk stjórnmál, stöðu erlendra kvenna á vinnumarkaði, kynjuð fjármál, kynjafræði á öllum skólastigum, samtvinnun jafnréttisbaráttunnar, o.fl.

Á þinginu verður hægt að taka þátt í upptöku á hlaðvarpinu Kona er nefnd og Kvennasögusafn Íslands stendur fyrir sýningu á úrvalsgripum úr sögu kvenna. Femínískt kaffihús er rekið í Norræna húsinu meðan á þinginu stendur og því lýkur á femínísku hænustéli!

Nánari dagskrá Kynjaþings er að finna á síðunni: http://kynjathing.is/dagskra.


Hvað er Kynjaþing?

Kynjaþingið er lýðræðislegur og femínískur vettvangur fyrir almenning. Dagskrá þingsins er skipulögð af félagasamtökum og grasrótarsamtökum og hugmyndin er sú að auka samræður milli okkar sem er annt um jafnrétti í heiminum og gefa almenningi tækifæri til að kynnast því helsta sem er að gerast í femíniskri umræðu.

Kynjaþing var fyrst haldið 2018, en til stendur að þingið verði haldið árlega.