Velkomin á Hallveigarstaði 19. júní!
Við höldum upp á kvenréttindadaginn þriðjudaginn 19. júní n.k. á Hallveigarstöðum kl. 17:30
Dagskrá:
- Helga Guðrún Jónasdóttir, ávarp formanns Kvenréttindafélags Íslands
- Sigurlaug Viborg, ávarp forseta Kvenfélagasambands Íslands
- Ragnhildur Jóhanns, frá Endemi, fjallar um konur í list
- Fríða Rós Valdimarsdóttir greinir frá niðurstöðum rannsókna um íslenska vændiskaupendur
- Steinunn Gyðu- Guðjónsdóttir kynnir Kristínarhús, athvarf fyrir konur sem hafa verið seldar mansali eða stundað vændi og vilja komast út úr því
- Kristín Þóra Harðardóttir úthlutar styrkjum úr Menningar- og minningarsjóði kvenna
Kaffiveitingar og spjall
Kvennamessa í Laugardalnum kl. 20
Kvennakirkjan, Kvenréttindafélag Íslands og Kvenfélagasamband Íslands bjóða ykkur velkomin í kvennamessu við Þvottalaugarnar í Laugardalnum kl. 20 þann 19. júní.
Næsta guðþjónusta Kvennakirkjunnar verður við Þvottalaugarnar í Laugardal þriðjudaginn 19. júní klukkan 20. Séra Agnes M. Sigurðardóttir verðandi biskup predikar og kvenprestar taka þátt í messunni. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng, Ásdís Þórðardóttir leikur á trompet og Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur.