Í tilefni af 70 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna standa samræðuvettvangur um mannréttindi, þar á meðal Kvenréttindafélag Íslands, og stýrihópur Stjórnarráðsins um mannréttindi að hátíðarfundi í Veröld – húsi Vigdísar, mánudaginn 10. desember frá kl. 09:00–11:00.

Mannréttindayfirlýsingin hefur verið og er enn mikilvægt tæki í baráttunni fyrir mannréttindum en hún er undirstaða helstu alþjóðasamninga um mannréttindi. Lögin nægja þó ekki ein og sér. Til þess að sækja rétt sinn og virða rétt annarra er mikilvægt að fólk viti hvað felst í mannréttindum en þekking á ákvæðum Mannréttindayfirlýsingarinnar er forsenda réttláts samfélags.

Komdu og taktu þátt í umræðunni með okkur! Mannréttindayfirlýsingin tilheyrir okkur öllum og það er mikilvægt að standa vörð um þann áfanga sem náðst hefur og styrkja og halda áfram að stuðla enn frekar að virðingu fyrir mannréttindum.

Dagskrá

  • Jón Atli Benediktsson býður gesti velkomna
  • 9:00–9:10 Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra flytur opnunarávarp
  • 9:10–9:30 Mannréttindayfirlýsingin – Undirstaða mannréttindaverndar í heiminum. Björg Thorarensen prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands
  • 9:30–9:35 Hvað getur Ísland lagt af mörkum til að standa vörð um mannréttindi á alþjóðavísu? Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra
  • 9:35–10:25 Pallborðsumræður: Staða mannréttinda á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Í borði sitja Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Silja Bára Ómarsdóttir dósent við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, Þórlindur Kjartansson pistlahöfundur hjá Fréttablaðinu, Hanna Katrín Friðriksson þingkona og Björg Thorarensen prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands. Umræðustjóri er Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans
  • 10:25–10:40 Verðlaunaafhending í smásagnasamkeppni vegna 70 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Michael Mann sendiherra ESB á Íslandi og Vilborg Davíðsdóttir varaformaður Rithöfundasambands Íslands kynna sigurvegara smásagnakeppninnar
  • 10:40–10:50 Mikilvægi mannréttinda fyrir komandi kynslóðir. Ritstjórn skuggaskýrslu barna til barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna spjalla, Jökull Ingi Þorvaldsson, Sunneva Björk Birgisdóttir, Einar Hrafn Árnason
  • 10:50–11:00 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur lokaorð

Um kvöldið bjóða Sameinuðu þjóðirnar til ókeypis sýningar á myndinni Hreinsunardeildin (The Cleaners). Myndin verður sýnd í Bíó Paradís (sal 2) kl. 20:00.

Myndin beinir sjónum að því hvernig internetið er hreinsað af „óæskilegu“ efni. Í myndinni er varpað fram spurningum um hver stjórni netinu og því hvernig við hugsum. Að lokinni sýningu verða umræður um efni myndarinnar með Heiðdísi Lilju Magnúsdóttur lögfræðingi hjá Fjölmiðlanefnd og Smára McCarthy alþingismanni.

Hér má sjá sýnishorn úr myndinni: https://www.youtube.com/watch?v=iGCGhD8i-o4&t=11s.