Í tilfefni af alþjóðlegum baráttudegi  kvenna fyrir friði og jafnrétti, laugardaginn 8. mars, verður haldinn opinn fundur í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur undir yfirskriftinni Friður og menning.  Hér á landi er hefð fyrir því að Menningar- og friðarsamtökin MFÍK hafi frumkvæði að því að bjóða kvennasamtökum og stéttarfélögum til samstarfs í tilefni dagsins. Í ár standa 16 samtök og stéttarfélög að fundinum í Ráðhúsi Reykjavíkur, þ.á.m. KRFÍ, og hefst hann kl. 14:00.

  • Dagskrá:
  • Birna Ólafsdóttir, sjúkraliði: Þáttur verkalýðshreyfingar í menningu.
  • Petra Deluxsana, í stjórn Samtaka kvenna af erl. uppruna: Leit að hamingju.
  • Kristín Vilhjálmsdóttir, kennari: Fljúgandi teppið.
  • Guðrún Lára Pálmadóttir, trúbador flytur eigin lög.
  • Ólöf Nordal, myndlistarmaður:Bríetarbrekka.
  • Guðrún Kristinsdóttir, prófessor við Kennaraháskóla Íslands: Friður á heimilinu – Sjónarhóll barna.
  • María S. Gunnarsdóttir, form. Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK: Friðaruppeldi.
  • Opið út sýnir brot úr leikritinu mammamamma. Leikarar: María Ellingsen, Þórey Sigþórsdóttir, Magnea Valdimarsdóttir og Birgitta Birgisdóttir.  Leikmynd: Ólöf Nordal og Þórunn María Jónsdóttir. Tónlist: Ólöf Arnalds.  Leikstjóri: Charlotte Böving.

Fundarstjóri:  Kristín Steinsdóttir, rithöfundur.

Konur heims – skyggnumyndasýning Hörpu Stefánsdóttur. Í föndurhorni friðarsinna: Vinabönd og friðarsvanir.