Hallveigarstöðum, Reykjavík
28. febrúar 2017
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um lengingu foreldra- og fæðingarorlofs og styrkingu Fæðingarorlofssjóðs. Hægt er að lesa frumvarpið hér.
Kvenréttindafélag Íslands hefur sent frá sér eftirfarandi umsögn:
Kvenréttindafélags Íslands fagnar þessu frumvarpi sem kveður á um lengingu fæðingarorlofs í tólf mánuði og styrkingu Fæðingarorlofssjóðs.
Núverandi fæðingarorlofskerfi skapar foreldrum ungra barna ekki það fjárhagslega öryggi sem þarf að vera til staðar þegar fólk tekur á sig jafn stóra skuldbindingu og að eignast barn. Framfærsla er bæði of lág og fæðingarorlof of stutt. Það er því löngu tímabært að styðja við fæðingarorlofskerfið, og hér er stigið gott skref í rétta átt.
Kvenréttindafélag Íslands vill þó koma á framfæri þeirri skoðun sinni að réttindum á vinnumarkaði eigi ekki að deila með öðrum og telur því eðlilegt að hvort foreldri um sig eigi sex mánaða sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs.
Kvenréttindafélag Íslands vill einnig koma á framfæri þeirri skoðun sinni að hámarksgreiðslumark Fæðingarorlofssjóðs þurfi að hækka. Reynsla síðustu ára hefur sýnt að með lækkun hámarksgreiðslna hefur dregið úr fæðingarorlofstöku feðra. Jafn réttur foreldra til fæðingar- og foreldraorlofs er ein grundvallarstoð jafnréttis kynjanna. Það er brýnt jafnréttismál að tryggja að feður haldi áfram að nýta rétt sinn til fæðingarorlofstöku, sem eykur jafnrétti kynja á vinnumarkaði, stuðlar að auknum lífsgæðum barna og eykur jafnrétti kynja innan heimilisins.
Kvenréttindafélag Íslands vill að lokum koma því á framfæri að nauðsynlegt sé að brúa bilið á milli þess þegar fæðingar- og foreldraoflofi lýkur og þegar daggæsla barna er tryggð. Jafnvel eftir lengingu fæðingar- og foreldraorlofs sem um ræðir í þessu frumvarpi, stendur eftir eitt ár sem foreldrar hafa ekki tryggða daggæslu, og eitt og hálft ár fyrir einstæða foreldra.
One Comment
Comments are closed.
Vil benda á eftirfarandi söfnun undirskrifta: https://www.petitions24.com/studningur_lenging_faedingarorlofs
Ykkar félagsmenn hafa mögulega áhuga á að skrifa undir þar til að styðja við frumvarp á lengingu fæðingarorlofs.