Hinn árlegi jólafundur Kvenréttindafélags Íslands verður haldinn í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu 14, Reykjavík, mánudaginn 12. desember kl. 20. Líkt og undanfarin ár fer fundurinn fram í samstarfi við Kvennasögusafn Íslands.
Hægt verður að kaupa happdrættismiða til styrktar Kvenréttindafélaginu, þar sem í boði eru vinningar eins og nýútkomnar jólabækur og gjafabréf frá veitingahúsum, leikhúsum og kvikmyndahúsum.
Allir félagar og gestir þeirra eru velkomnir í kaffi og kökur!
Dagskrá
20.00        Ávarp: Helga Guðrún Jónasdóttir, formaður Kvenréttindafélagsins
20.15        Erindi: Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands
20.30        Upplestur úr nýútkomnum jólabókum 
Kristín Svava Tómasdóttir les úr ljóðabók sinni Skrælingjasýningin
Helga Ólafsdóttir les úr Á rauðum sokkum, sögu Rauðsokkahreyfingunnar
Hallgrímur Helgason les skáldsögunni Konan við 1000°
21.15        Kaffihlé
21.30        Jólahappdrætti Kvenréttindafélagsins
22.00        Fundarlok

			
			
			