Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti er 8. mars næstkomandi. Að vanda verður haldið upp á daginn hér á Íslandi. Verið velkomin á friðarfund í Iðnó fimmtudaginn 8. mars kl. 17:00!
Dagskrá
Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir
Ávörp:
- Claudia Ashonie: Menntun kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og atvinna að námi loknu
- Védís Guðjónsdóttir: Saman eða sundur
- Sigríður Rut Hilmarsdóttir: Vinna með barnalýðræði
- Steinunn Þóra Árnadóttir: Kjósum burt NATÓ!
- Suomia Islami: Hlutverk kvenna í „arabíska vorinu“
- Guðrún Jónsdóttir: „Og þær lifðu hamingjusamar til æviloka.“ Umfjöllun um vændi og Kristínarhús
- Guðrún Hannesdóttir: Mennska
- Magga Stína syngur við undirleik Kristins Árnasonar
Að fundinum standa: Menningar- og friðarsamtökin MFÍK, BHM – Bandalag háskólamanna, BSRB – Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Félag leikskólakennara, Félagsráðgjafafélag Íslands, Friðarhús, Íslandsdeild Amnesty International, Kennarasamband Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvennahreyfing Öryrkjabandalags Íslands, Kvenréttindafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Samstarfshópur friðarhreyfinga, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Samtök um Kvennaathvarf, SFR- stéttarfélag í almannaþjónustu, SHA – Samtök hernaðarandstæðinga, Sjúkraliðafélag Íslands, Stígamót, St.Rv. – Starfsmannafélag Reykjavíkur, Söguhringur kvenna, Þroskaþjálfafélag Íslands.