Hinn árlegi jólafundur Kvenréttindafélags Íslands verður haldinn í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu 14, Reykjavík, þriðjudaginn 4. desember kl. 20. Líkt og undanfarin ár fer fundurinn fram í samstarfi við Kvennasögusafn Íslands.
Hægt verður að kaupa happdrættismiða til styrktar Kvenréttindafélaginu, í boði eru vinningar eins og nýútkomnar jólabækur og gjafabréf frá verslunum, veitingahúsum og leikhúsum.
Allir félagar og gestir þeirra eru velkomnir í kaffi og kökur!
Dagskrá
20.00 Ávarp: Ragnheiður Bóasdóttir, starfandi formaður Kvenréttindafélagsins
20.15 Erindi: Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands
20.30 Upplestur úr nýútkomnum jólabókum
- Auður Jónsdóttir les úr skáldsögu sinni Ósjálfrátt
- Eyrún Ingadóttir les úr skáldsögu sinni Ljósmóðirin
- Jón Ólafsson les úr ævisögunni Appelsínur frá Abkasíu: Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu
21.15 Kaffihlé
21.30 Jólahappdrætti Kvenréttindafélagsins
22.0 Fundarlok