Fundarboð
Aðalfundur Kvenréttindafélags Íslands
verður haldinn þriðjudaginn 11. júní 2013 kl. 17:00
í samkomusal Hallveigarstaða, Túngötu 14 í Reykjavík.
Dagskrá fundar:
Skýrsla stjórnar og reikningar
Skýrslur fulltrúa KRFÍ í nefndum og stjórnum
Kosning stjórnar
Önnur mál
Kaffiveitingar
Allir skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á fundinum. Verið velkomin!