Velkomin á kynningarfund þann 22. október fyrir samnorrænu kvennaráðstefnuna Nordiskt Forum sem haldin verður í Malmö í júní 2014. Fundurinn verður haldinn að Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum og hefst kl. 20.00.
Norræna kvennaráðstefnan Nordisk Forum verður haldin 12.-15. júní 2014 í Malmö, Svíþjóð. Þetta er í þriðja skipti sem boðað er til Nordisk Forum, en hún var haldin í Osló, Noregi 1988 og Turku, Finnlandi 1994.
Nordiskt Forum mun fjalla um allt milli himins og jarðar tengt jafnréttisbaráttunni og kvenréttindum, bæði á Norðurlöndum sem og annars staðar í heiminum.
Búist er við 15.000 þátttakendum á ráðstefnunni. Þegar ráðstefnan var síðast haldin 1994 voru íslenskir þátttakendur rúmlega 1.400 og íslenskar konur því hlutfallslega stærsti hópur ráðstefnugesta.
Aðstandendur ráðstefnunnar eru kvennahreyfingarnar á Norðurlöndum.
Á kynningarfundinum verður skipulagning ráðstefnunnar kynnt og rætt um þátttöku íslenskra kvenna að þessu sinni.
Veitingar og drykkjarföng eru í boði.
Mætum og látum í okkur heyra!
Heimasíða Nordiskt Forum: http://nf2014.org/