Athugið, þessi stefnuskrá var felld úr gildi á aðalfundi 29. maí 2018. Lesið nýjustu stefnuskrá félagsins hér.
—
Markmið Kvenréttindafélags Íslands er að vinna að kvenréttindum og jafnri stöðu kvenna og karla á öllum sviðum samfélagsins.
Til þess að ná fram þessum markmiðum stefnir félagið á að taka þátt í samfélagslegri umræðu með virkum hætti og einbeita sér að eftirfarandi verkefnum og áherslum, sem hafa skýr feminísk markmið og víða samfélagslega skírskotun:
- Efnahagslegum réttindum og fjárhagslegu sjálfstæði kvenna
- Kynja- og jafnréttisfræðslu á öll skólastigum
- Sjálfsákvörðunarrétti kvenna yfir eigin líkama
- Skapa pláss fyrir fjölbreyttan feminínisma og eiga í virku samstarfi og samræðum við önnur félög um málefni sem tengja okkur öll saman
- Stuðla að aukinni umræðu í samfélaginu um femínisma
Samþykkt á félagsfundi 24. október 2015.