Kvenréttindafélag Íslands boðar hér með til aðalfundar miðvikudaginn 4. maí kl. 16:30-18:30. 

Tillögur, ályktanir og framboð til trúnaðarstarfa skulu berast í netfang postur@kvenrettindafelag.is, í síðasta lagi 27. apríl 2022.

Lesið ársskýrslu Kvenréttindafélags Íslands 2021 hér.

Fundarstaður

Veröld – Hús Vigdísar og rafrænt á Zoom.

Skráning á aðalfund

Öll sem hafa áhuga til að sitja aðalfund eru beðin að skrá sig til þátttöku hér: https://forms.gle/mm1vUJr3EXXhTHqT7.

Rafrænn kjörseðill og krækja í rafrænt fundarherbergi eru send öllum skráðum þátttakendum morguninn 4. maí.

Kallað eftir framboðum

Á fundinum er kosið um:

þrjá fulltrúa í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til tveggja ára
þrjá varamenn í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til eins árs
tvo skoðunarmenn reikninga Kvenréttindafélags Íslands
fimm stjórnarmenn og fimm varamenn í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna
tvo fulltrúa Kvenréttindafélagsins í Mannréttindaskrifstofu Íslands
einn fulltrúa Kvenréttindafélagsins í Almannaheill
tvo fulltrúa á aðalfund European Women’s Lobby – EWL.

Tilkynnið framboð hér: https://forms.gle/YrujwQehKkwB4FGj8 , í síðasta lagi 27. apríl 2022.

Allir skuldlausir félagar hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundinum en kröfur fyrir félagsgjöldum 2022–2023 hafa verið birtar í netbönkum félaga.

Dagskrá fundar

  • Setning aðalfundar
  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Lögmæti fundarins staðfest
  • Skýrslur stjórna KRFÍ og MMK lagðar fram. Lesið ársskýrslu Kvenréttindafélagsins hér.
  • Endurskoðaðir reikningar KRFÍ og MMK lagðir fram til samþykktar
  • Ákvörðun tekin um upphæð félagsgjalds
  • Tillögur um framkomnar lagabreytingar
  • Kosning stjórnar
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  • Kosning stjórnar MMK
  • Kosning fulltrúa í nefndir og samtök sem KRFÍ á aðild að, þar á meðal aðal- og varafulltrúa á aðalfund EWL.
  • Önnur mál
    • Ný aðildarfélög að Kvenréttindafélaginu: Slagtog.
  • Fundi slitið