Vald og ábyrgð

Málþing um kynferðisofbeldi og samfélag sem bregst

Fimmtudaginn 20. ágúst 2026, kl. 17.00–18.30

Hallveigarstaðir, samkomusalur í kjallara (aðgengi fyrir öll)
Túngata 14, Reykjavík

Kvenréttindafélag Íslands, Bjarkarhlíð, Stígamót, Kvennaathvarfið, Líf án ofbeldis og Vitund standa fyrir málþingi í kjölfar hlaðvarpsþáttaraðarinnar Biskupsmálið eftir Gabríelu Bryndísi Ernudóttur.

Í þáttaröðinni var fjallað um vald og ábyrgð: hvernig valdamikill maður og embætti hans nutu verndar á meðan konur sem sögðu frá kynferðisofbeldi þurftu ítrekað að verja frásagnir sínar og trúverðugleika.

Jafnframt var sýnt hvernig afleiðingar kynferðisofbeldis, þöggunar og viðbragða stofnana geta varað áratugum saman og haft áhrif langt út fyrir líf þeirra sem urðu sjálfar fyrir ofbeldinu.

Á málþinginu verður spurt:

Hvar stöndum við í dag?
Hvað hefur breyst í viðbrögðum samfélagsins við kynferðisofbeldi — og hvað þarf enn að bæta?

Dagskrá

Fundarsetning:
Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar

Framsaga:
Gabríela Bryndís Ernudóttir, sálfræðingur og höfundur hlaðvarpsþáttaraðarinnar Biskupsmálið

Upplestur:

Guðrún Ebba Ólafsdóttir, kennari og baráttukona les úr bók sinni Ekki líta undan sem kom út 2011
Dr. Anna Ragna Fossberg, rithöfundur og næringarfræðingur les úr bók sinni Hirðfíflið sem kom út árið 2025
Aldís Schram, lögfræðingur, leikkona og höfundur fer með frumsamið ljóð

 

Pallborð:
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Dr. Anna Ragna Fossberg
Aldís Schram
Gabríela Bryndís Ernudóttir

Jenný Kristín Valberg

 

Fundar- og pallborðsstjóri:
Elín Hirst, fjölmiðlakona og höfundur bókarinnar Ekki líta undan – saga Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur

Athugið að ný lyfta er komin í húsið að Hallveigarstöðum og því er gott aðgengi fyrir öll.

Aðrar fréttir