
Framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands
Kvenréttindafélag Íslands leitar að öflugri og metnaðarfullri framkvæmdastýru til að leiða daglegt starf félagsins og vinna að framgangi kvenréttinda og jafnréttis á Íslandi.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem framkvæmdastýra ber ábyrgð á rekstri félagsins, að framfylgja stefnu, fjármögnun, verkefnastjórnun, samskiptum við stjórnvöld, fjölmiðla og samstarfsaðila, sem og skipulagningu viðburða og fræðslu. Framkvæmdastýra vinnur náið með stjórn félagsins og fylgir eftir ákvörðunum hennar.
Helstu verkefni
- Ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og framkvæmd verkefna félagsins.
- Undirbúningur og eftirfylgni stjórnarfunda og aðalfunda.
- Gerð starfs- og fjárhagsáætlana og eftirlit með fjármálum félagsins.
- Umsjón með styrkumsóknum, fjáröflun og samskiptum við styrktaraðila.
- Umsjón með félagaskrá og samskiptum við félagsfólk.
- Skipulagning ráðstefna, funda og annarra viðburða.
- Umsjón með vefsíðu, samfélagsmiðlum og kynningarmálum.
- Samskipti við fjölmiðla, stjórnvöld, félagasamtök og aðra samstarfsaðila.
- Ritun umsagna um lagafrumvörp, stefnumótandi skjöl og jafnréttismál.
- Eftirlit með þróun jafnréttismála og þátttaka í stefnumótun félagsins.
- Umsjón með innlendu og alþjóðlegu samstarfi félagsins.
- Mannauðsmál, ráðningar og umsjón með starfsfólki og sjálfboðaliðum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynslu af stjórnun, verkefnastjórnun og rekstri.
- Góða þekkingu og brennandi áhuga á jafnréttismálum, mannréttindum og femínisma.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og reynslu af samstarfi við fjölbreyttan hóp hagsmunaaðila.
- Reynslu af fjáröflun, styrkjaumsóknum eða rekstri félagasamtaka.
- Mjög góða færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og getu til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
Við bjóðum
- Einstakt tækifæri til að hafa áhrif á þróun jafnréttismála á Íslandi.
- Fjölbreytt og gefandi starf í öflugum félagasamtökum með langa sögu.
- Náið samstarf við stjórn, félagsfólk og breiðan hóp samstarfsaðila innanlands og erlendis.
- Sveigjanlegt starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur: 25. nóvember 2026
Nánari upplýsingar: Tatjana Latinovic, Formaður Kvenréttindafélags Íslands, tatjana@krfi.is
Umsóknir sendist gegnum Alfred. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem ástæður umsóknar eru raktar sem og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Kvenréttindafélag Íslands hvetur öll hæf til að sækja um, óháð kyni, aldri, uppruna, fötlun, trú, kynhneigð eða öðrum persónubundnum þáttum. Öllum umsóknum verður svarað.

