Á slóðir Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Þingholtunum

Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Bríet Bjarnhéðinsdóttir

Velkomin í gönguferð um slóðir Bríetar Bjarnhéðinsdóttur laugardaginn 5. apríl kl. 13:30.

Lagt er af stað í stutta göngu frá minnismerki Bríetar í Bríetarbrekku, Þingholtsstræti – skáhalt á móti Þingholtsstræti 8a. Göngustjóri er Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands.

Að lokinni göngu er boðið upp á síðdegiskaffi í Hannesarholti. Auður heldur áfram að fræða okkur um Bríeti og leggur áherslu á erlend samskipti hennar. Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur spyr: „Er jafnrétti útópía?“ Og Steinunn Stefánsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands, ávarpar fundinn.

Verð: 1.500 krónur

Vinsamlegast komið með rétta upphæð. Greiða skal áður en lagt er af stað í gönguferðina. Nauðsynlegt er að láta skrá sig í ferðina og boða forföll.

Upplýsingar og skráning í símum: 666-7810 eða 551-6603 eða í netfangi: asdisskula [@] internet.is. Einnig er hægt að skrá sig í Félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31 í síma 411-2790.