Kvenréttindafélag Íslands boðar hér með til aðalfundar fimmtudaginn 23. mars kl. 16:30-18:30 í Iðnó, 2.hæð.

Tillögur og ályktanir skulu berast í netfang postur@kvenrettindafelag.is, í síðasta lagi 16.mars.

Sjá fyrir neðan upplýsingar um skráningu á aðalfund og framboð til trúnaðarstarfa.

 

Fundarstaður

Iðnó og rafrænt á Zoom.

Skráning á aðalfund

Öll sem hafa áhuga til að sitja aðalfund eru beðin að skrá sig hér.

Rafrænn kjörseðill og krækja í rafrænt fundarherbergi eru send öllum skráðum þátttakendum morguninn 23. mars.

Kallað eftir framboðum

Á fundinum er kosið um:

  • formann stjórnar til tveggja ára
  • þrjá fulltrúa í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til tveggja ára
  • þrjá varamenn í stjórn Kvenréttindafélags Íslands til eins árs
  • tvo skoðunarmenn reikninga Kvenréttindafélags Íslands
  • fimm stjórnarmenn og fimm varamenn í stjórn Menningar- og minningarsjóðs kvenna
  • tvo fulltrúa Kvenréttindafélagsins í Mannréttindaskrifstofu Íslands
  • einn fulltrúa Kvenréttindafélagsins í Almannaheill
  • tvo fulltrúa á aðalfund European Women’s Lobby – EWL.

Tilkynnið framboð hér, í síðasta lagi 16. mars 2023.

Allir skuldlausir félagar hafa kjörgengi og atkvæðisrétt á fundinum en kröfur fyrir félagsgjöldum 2023–2024 birtast á næstu dögum í netbönkum félaga.

Tillaga til lagabreytingar

Lögð er fram tillaga til breytingar á 8.gr. laga Kvenréttindafélagsins:

8. gr. Kjörnefnd

Eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund skal stjórn skipa þrjá félaga í kjörnefnd sem tryggir framboð til trúnaðarstarfa. Tillögur nefndarinnar skulu liggja frammi á skrifstofu KRFÍ tveimur vikum fyrir aðalfund og skulu félagar skila tillögum sínum þangað eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Lagt er til að fjarlægja „Eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund“. Eftir breytingu myndi 8. gr. líta svona út:

Stjórn skal skipa þrjá félaga í kjörnefnd sem tryggir framboð til trúnaðarstarfa. Tillögur nefndarinnar skulu liggja frammi á skrifstofu KRFÍ tveimur vikum fyrir aðalfund og skulu félagar skila tillögum sínum þangað eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Dagskrá fundar

  • Setning aðalfundar
  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Lögmæti fundarins staðfest
  • Skýrslur stjórna KRFÍ og MMK lagðar fram.
  • Endurskoðaðir reikningar KRFÍ og MMK lagðir fram til samþykktar
  • Ákvörðun tekin um upphæð félagsgjalds
  • Tillögur um framkomnar lagabreytingar
  • Kosning stjórnar
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  • Kosning stjórnar MMK
  • Kosning fulltrúa í nefndir og samtök sem KRFÍ á aðild að, þar á meðal aðal- og varafulltrúa á aðalfund EWL.
  • Önnur mál
  • Fundi slitið

 

Séu einhverjar spurningar varðandi fundinn, vinsamlegast hafið samband við Rut Einarsdóttur, framkvæmdastýru Kvenréttindafélagsins í netfang: rut@krfi.is

Hlökkum til að sjá sem flest!