Af óviðráðanlegum ástæðum þarf að fresta aðalfundi Kvenréttindafélag Íslands um eina viku. Ný dagsetning aðalfundar er  mánudaginn 9. maí 2016 kl. 16:30. Fundurinn er haldinn að Hallveigarstöðum, Túngötu 14 í Reykjavík.

Á fundinum verður lögð fram eftirfarandi tillaga til breytinga á lögum Kvenréttindafélags Íslands:

2. grein. Markmið félagsins er að vinna að kvenréttindum og jafnri stöðu kvenna og karla á öllum sviðum samfélagsins. Félagið vinnur samkvæmt stefnuskrá sem samþykkt er á félagsfundi.

verður

2. grein. Markmið félagsins er að vinna að kvenréttindum og jafnri stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Félagið vinnur samkvæmt stefnuskrá sem samþykkt er á félagsfundi.

Núgildandi lög Kvenréttindafélagsins er að finna á vefsíðu félagsins, hér.

Dagskrá fundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Lögð fram skýrsla stjórnar með kafla um störf nefnda og stjórna
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins
  4. Ákveðið félagsgjald, sbr. 7. gr
  5. Tillögur um lagabreytingar, ef koma fram
  6. Kosinn formaður, sbr. 5 gr.
  7. Kosin stjórn, sbr. 5. gr.
  8. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga
  9. Kosin stjórn Menningar-og minningarsjóðs kvenna, sbr. 8. gr
  10. Valdir fulltrúar í nefndir og ráð sem KRFÍ á aðild að
  11. Önnur mál

Allir skuldlausir félagar hafa atkvæðisrétt á fundinum.

Áhugasamir um að bjóða sig fram til stjórnar Kvenréttindafélags Íslands eða sem fulltrúar félagsins í nefndum og ráðum, hafi samband við félagið í netfang postur(@)kvenrettindafelag.is.

Hægt er að lesa ársskýrslu Kvenréttindafélags Íslands 2015 á vef félagsins.

Aðgengi fyrir alla! Kaffiveitingar! Verið velkomin!