Aðalfundur Kvenréttindafélagsins var haldinn 30. apríl 2012 á Hallveigarstöðum.

Auk venjulegra aðalfundarstarfa, þar sem reikningar og skýrslur stjórnar voru lagðar fram, var kosið í framkvæmdastjórn félagsins en hana skipa 8 konur. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir varaformaður lét af störfum í stjórninni eftir ómetanlegt starf fyrir félagið og var kvödd með virktum. Ragnheiður Bóasdóttir stjórnarkona bauð sig fram til embættis varaformanns KRFÍ og var kosin einróma.

Ein ný stjórnarkona var kosin á fundinum, Eygló Árnadóttir mann- og kynjafræðingur. Eygló hefur unnið að rannsóknum um jafnréttisfræðslu í skólum, kynjahlutföllum í fjölmiðlum og stöðu kvenna á krepputímum. Kvenréttindafélag Íslands býður Eygló velkomna í stjórn!