Árás á kvenréttindi í einu landi er árás á kvenréttindi alls staðar

Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélags Íslands hefur skrifað eftirfarandi grein:


Það berast slæmar fréttir frá Tyrklandi þar sem Recep Tayyip Erdogan forseti lýsti nýlega því yfir að Tyrkland segði sig frá samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi, svokölluðum Istanbúlsamningi. Þessi ákvörðun Tyrklandsforseta er mikið bakslag í jafnréttisbaráttunni á alþjóðavettvangi og skýrt merki þess að kvenréttindi og mannréttindi eiga undir högg að sækja.

Istanbúlsamningurinn er fyrsta alþjóðlega verkfærið sem tekur heildstætt á ofbeldi gegn konum. Samningurinn hefur bæði forvarnargildi og vinnur beint gegn kynbundnu ofbeldi. Í samningnum er að finna yfirgripsmikið regluverk og stefnumarkmið sem fyrirbyggir ofbeldi, styður brotaþola og myndar refsiramma fyrir gerendur. Ísland er meðal þeirra 34 ríkja sem hafa fullgilt samninginn, en alls hafa 45 þjóðríki og Evrópusambandið undirritað hann.

Ákvörðun Tyrklands að rifta þessum samningi er ekki aðeins aðför að konum heldur einnig að hinsegin fólki, minnihlutahópum og viðkvæmum hópum. Með því er ekki einungis verið að halda aftur af og koma í veg fyrir aukið jafnrétti í Tyrklandi, heldur Evrópu allri því ákvörðunin setur hættulegt fordæmi fyrir önnur ríki þar sem mannréttindi og lýðræði kunna að standa höllum fæti.

Kvenréttindafélag Íslands hefur sent bréf til Katrínar Jakobsdóttur forsætis- og jafnréttismálaráðherra og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra með hvatningu til íslenskra stjórnvalda um að uppfylla skuldbindingar sínar sem aðildarríki Evrópuráðsins og ríki sem fullgilt hefur Istanbúlsamninginn. Í bréfunum eru þau hvött til að grípa til eftirfarandi aðgerða:

• Að hvetja tyrknesk stjórnvöld til að draga til baka ákvörðun sína um að segja sig frá Istanbúlsamningnum.

• Að hvetja öll aðildarríki Evrópuráðsins og ríki sem undirritað hafa Istanbúlsamninginn að beita öllum lagalegum og pólitískum ráðum til að koma í veg fyrir að Tyrkland geti sagt sig frá Istanbúlsamningnum.

• Að hvetja öll aðildarríki Evrópuráðsins til að fullgilda Istanbúlsamninginn tafarlaust og skilyrðislaust, hafi það ekki þegar verið gert.

Með þessum aðgerðum geta íslensk stjórnvöld sýnt pólitíska forystu á alþjóðavettvangi og verið öðrum þjóðum leiðarljós í jafnréttismálum.

Staða kvenna hefur snarversnað á tímum alheimsfaraldurs COVID-19 um heim allan. Konur eru sérstaklega útsettar fyrir afleiðingum efnahagskreppunnar sem fylgt hefur faraldrinum og hafa þurft að bera þunga byrði í umönnunarstörfum. Ofbeldi gegn konum og börnum hefur á sama tíma aukist, og er Ísland þar engin undantekning. Tilkynningum um heimilisofbeldi á Íslandi hefur fjölgað í kjölfar COVID-19, sem og tilkynningum til barnaverndar.

Það er á tímum sem þessum sem mikilvægi alþjóðlegra samninga gegn ofbeldi, líkt og Istanbúlsamningsins, er augljóst. Nú er nauðsynlegt að allar þjóðir heims taki höndum saman, bregðist við bakslaginu í kvenréttindum og tryggi áframhaldandi framþróun í jafnréttismálum.

Árás á kvenréttindi í einu landi er árás á kvenréttindi alls staðar. Allar konur og stúlkur eiga það skilið að lifa lífi sínu frjálsar frá ofbeldi. Grípum til aðgerða strax!

Þessi grein birtist á Vísi.is 31. mars 2021