Bækur til sölu

Kvenréttindafélag Íslands gaf út sögu félagsins árið 1993: Veröld sem ég vil, eftir Sigríði Th. Erlendsdóttur, sagnfræðing. Saga KRFÍ er samofin sögu kvenréttindabaráttu á Íslandi og er rit Sigríðar mjög vandað og ítarlegt, skreytt fjölda ljósmynda. Nauðsynleg bók fyrir alla er láta sig kvenréttindi varða en nauðsynlegt er að þekkja sögu baráttunnar til að átta sig á aðstæðum í dag.

Bókin er til sölu á skrifstofu KRFÍ á aðeins 2.000 kr. Einnig selur KRFÍ jólakort og merkimiða til styrktar starfseminni. Nú fyrir jólin höfum við þar að auki til sölu dagatalsbókina Konur eiga orðið, sem bókaútgáfan Salka gefur út, á tilboðsverði: 2.100 kr.

Við bjóðum félaga og velunnara KRFÍ velkomna á skrifstofuna milli kl. 09:00-13:00 alla virka daga. Heitt á könnunni!