Enn halda konur uppi kerfunum

Hver ber ábyrgð?
Af umönnunarbili, fæðingarorlofi og tekjutapi

Hádegisfundur í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.

Til fundarins bjóða ASÍ, BHM, BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Fíh, Kennarasamband Íslands, Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja SSF.

Fundurinn verður á Hilton Reykjavík Nordica og streymt á Zoom kl. 11:30-13:00. Hann fer fram á íslensku en rittúlkun verður á ensku. Upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.

Fundarstýra: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

Fyrirlesarar

  • Guðný Björk Eydal, prófessor í félagsráðjöf. Fæðingarorlof – reynsla, þróun og framtíðarsýn– 20 mín.
  • Maya Staub, sérfræðingur hjá Vörðu rannsóknastofnun vinnumarkaðarins. Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs barnafjölskyldna á Íslandi.
  • Halldóra Guðmundsdóttir, varaformaður Félags stjórnenda leikskóla. Titil erindis vantar, samanburðartölur/staðan í leikskólamálum, virðing, peningar og fólk.

Pallborðsumræður: Anna Maria Milosz – skrifstofufulltrúi hjá Reykjavíkurborg , Guðný Björk Eydal – prófessor í félagsráðgjöf, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir – hagfræðingur BSRB, Sveinlaug Sigurðardóttir – varaformaður Félags leikskólakennara