Rauði kross Íslands, í samvinnu við Allar heimsins konur, vinnur að verkefninu: Félagsvinur – mentor er málið  sem hófst haustið 2007. Verkefnið felur í sér að byggja upp stuðningsnet fyrir konur af erlendum uppruna í íslensku samfélagi með það að markmiði að styrkja þær og efla á öllum sviðum samfélagsins og veita þeim félagslega hvatningu.

Hugmyndafræði verkefnisins byggir á að koma á sambandi milli tveggja kvenna sem báðar njóta góðs af, önnur frá Íslandi (mentor) og hin af erlendum uppruna (mentee). Þannig eru tengdar saman konur sem geta skipst á upplýsingum og þekkingu á jafningjagrundvelli þar sem unnið er að því að beisla þann óvirkjaða mannauð sem felst í menntun, þekkingu og reynslu kvenna, bæði konunum og íslensku samfélagi til hagsældar.

Þátttaka í verkefninu getur verið mjög fjölbreytt þar sem mismunandi þarfir eru fyrir hendi hjá konunum (mentee). Dæmi um það sem mentorar hafa verið að vinna að með mentee er til dæmis að aðstoða við að finna upplýsingar um námskeið, leiðir til þess að fá nám metið í starfi og margt fleira. Síðast en ekki síst er mikilvægt að vera til staðar og veita almennar upplýsingar um samfélagið. Með því að starfa sem mentor getur félagsvinurinn fengið nýja sýn á íslenskt samfélag, hvernig það er að aðlagast nýrri menningu í ókunnugu landi og þá um leið víkkað sjóndeildarhring sinn.

Þeir sem hafa áhuga á því að gerast mentor/mentee geta haft samband við Ásu Kolbrúnu asa@redcross.is  eða Þórunni thorunn@redcross.is.