Hádegismálþing KRFÍ verður haldið í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu, fimmtudaginn 25. september nk. kl. 12:00-13:00:

Uppröðun á framboðslista – ábyrgð stjórnmálaflokkanna

Dagskrá:

12:00   Súpa og brauð. 12:10   Margrét K. Sverrisdóttir, formaður KRFÍ: Ávarp. 12:15   Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands: Samábyrgð í stað strákaleikja: Fléttulistar í stað prófkjara.  12:30   Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður: Fleiri konur í sveitarstjórn, já takk. 12:45   Umræður.

Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir.