Mjög lítil fjölgun kvenna varð í bæjar- og sveitarstjórnum eftir kosningarnar 29. maí sl.

Samkvæmt Fréttablaðinu voru 192 konur kjörnar í bæjar- og sveitarstjórnir en 320 karlar. Hlutur kvenna er því 37,5%og eykst aðeins um 1,5 prósentustig á milli kosninga, var 36% eftir kosningarnar 2006.

Konur eru meirihluti fulltrúa í 11 af 76 sveitarfélögum á landinu en karlar í 65 sveitarfélögum. Karlar eru einráðir á einum stað á landinu, í Akrahreppi í Skagafirði. Þar var óhlutbundin kosning og fimm karlar kjörnir í hreppsnefnd.

Hlutfall kvenna er hæst í Reykjavík þegar landið er skoðað eftir kjördæmum: 47%, en lægst í Suðvesturkjördæmi eða 33%.