forsetaframboð2016

Félög kvenna á Hallveigarstöðum bjóða ykkur velkomin á hátíðarfund sunnudaginn 19. júní kl. 15. Fundurinn er haldinn í samkomusal Hallveigarstaða að Túngötu 14.

Í ár er fundurinn helgaður forsetakosningum og eru gestir fundarins konur í framboði til embættis forseta Íslands: Elísabet Jökulsdóttir, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Halla Tómasdóttir og Hildur Þórðardóttir.

Glæsilegar kaffiveitingar eru í boði Hallveigarstaða.

Dagskrá fundar

  • Guðrún Þórðardóttir forseti Kvenfélagasambands Íslands opnar fund og stýrir
  • Dagný Ósk Aradóttir Pind flytur kveðju frá Kvenréttindafélagi Íslands
  • Elísabet Jökulsdóttir ávarpar fundinn
  • Guðrún Margrét Pálsdóttir ávarpar fundinn
  • Halla Tómasdóttir ávarpar fundinn
  • Hildur Þórðardóttir ávarpar fundinn
  • Jóhanna Pálsdóttir formaður Bandalags kvenna í Reykjavík slítur fundi

 

Fögnum saman 101 árs afmæli kosningaréttar kvenna, sunnudaginn 19. júní 2016!