Velkomin á opinn fund um innflytjendakonur og ofbeldi,þriðjudaginn 12. nóvember kl. 8:30-10:00 í Veröld, húsi Vigdísar, herbergi 201.
Fundurinn er haldinn af ofbeldisvarnarnefnd Reykjavíkurborgar, fjölmenningarráði Reykjavíkurborgar, ASÍ, W.O.M.E.N. in Iceland, Kvenréttindafélagi Íslands og Kvennaathvarfinu.
Dagskrá:
- Rannsókn á reynslu innflytjenda kvenna af ofbeldi í nánum samböndum og ofbeldi á vinnustöðum. Dr. Brynja Elísabeth Halldórsdóttir, lektor í krítískum menntunarfræðum við menntavísindasvið.
- Möguleikar kvenna í ofbeldissamböndum til áframhaldandi dvalar á Íslandi eftir sambúðarslit. Claudie Ashonie Wilson, lögmaður.
- Hvað veist þú um Kvennaathvarfið? Hildur Guðmundsdóttir, vaktstýra Kvennaathvarfisins.
- Hvað mætir erlendum konum á íslenskum vinnumarkaði? Nanna Hermannsdóttir, hagfræðinemi.
- Fyrirspurnir og umræður.
Fundarstjóri er Heiða Björg Hilmisdóttir. Lokaorð flytur Sabine Leskopf, formaður fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar.
Öll velkomin!