Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélags Íslands hefur skrifað eftirfarandi grein:


Kvenréttindafélag Íslands fagnar í dag 115 ára afmæli sínu. Félagið var stofnað þann 27. janúar 1907 með það að markmiði að berjast fyrir kosningarétti kvenna og hefur alla tíð unnið að kvenréttindum og jafnri stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Þrátt fyrir að hafa starfað á aðra öld er félagið enn ungt í anda, enda nauðsyn til. Mikilvægt er að tryggja það að við öll sem búum á Íslandi njótum jafnra réttinda og góðs af gæðum samfélagsins.

Hjartað í baráttu Kvenréttindafélagsins hefur ávallt verið að tryggja þátttöku kvenna í stjórnmálum og aðgengi að ákvarðanatöku. Sá árangur sem við höfum þó þegar náð í jafnréttismálum hefur að miklu leyti áunnist vegna þess að konur hafa verið kjörnar í embætti, hvort sem er í sveitarstjórnum eða á Alþingi, og hafa þar með vald til að setja mál á dagskrá og atkvæðisrétt til að greiða þeim málum atkvæði.

Konum sem eru kjörnar í sveitarstjórnir hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu árin og eru eftir síðustu kosningar 47% sveitarstjórnarfulltrúa. Jafnt hlutfall kvenna á við karla í sveitarstjórnum er stór áfangi í sögu íslenska lýðveldisins og honum ber að sjálfsögðu að fagna. En einnig er okkur nauðsynlegt að hlúa að þessum árangri, því ef ekki er að gætt er hætta á því að konum fækki á ný í sveitarstjórnum. Skemmst er að minnast Alþingiskosninganna 2017, þegar hlutfall kvenna á Alþingi hrapaði úr 47% í 38%.

Á sama tíma er mikilvægt að við sem samfélag lítum alvarlega á leiðir til að auka fjölbreytileika í stjórnkerfi okkar. Samfélag okkar verður litríkara og fjölbreyttara með hverju árinu sem líður en sveitarstjórnir og Alþingi endurspegla ekki þessa þróun. Aðkallandi er að tryggja að framboðslistar stjórnmálaflokka séu lýsandi fyrir fjölbreytileika sveitarfélaganna og geti þannig með sanni haft hagsmuni allra íbúa að leiðarljósi.

Íbúar á Íslandi ganga til sveitarstjórnarkosninga í maí á þessu ári. Kvenréttindafélag Íslands skorar á íslenska stjórnmálaflokka að huga að þátttöku kvenna og fjölbreytileika í framboðslistum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2022, og setji sér reglur þar að lútandi.

Kvenréttindafélag Íslands og Jafnréttisstofa standa á næstu vikum fyrir átaki í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Fjölmenningarsetur, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og forsætisráðuneytið, þar sem mikilvægi fjölbreytileika í sveitarstjórnum er til umfjöllunar ásamt hvatningu til að kjósa fjölbreytt fólk til stjórnar.

Jafnrétti mun aðeins nást þegar fjölbreytt fólk af öllum kynjum tekur þátt. Er gott framboð á þínum lista? Kjósum jafnrétti í vor. #JÁTAK

Greinin birtist upphaflega á Vísi.is