Mánudaginn 28. janúar efnir KRFÍ til málþings í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur kl 14:00, þar sem rætt verður um áhrif löggjafar á framvindu jafnréttis. Málþingið er haldið í tilefni 101 árs afmælis félagsins.

Dagskrá:

  • Kl. 14:00  Þorbjörg I. Jónsdóttir, formaður KRFÍ, flytur erindi.
  • 14:10  Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður félags- og tryggingamálaráðherra.
  • 14:20  Ingvar Sverrisson, lögfræðingur Alþýðusambands Íslands.
  • 14:30  Hrafnhildur Stefánsdóttir, lögfræðingur Samtaka atvinnulífsins.
  • 14:40  Guðjón Bragason, lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  • 14:50  Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur Alþjóðahúss og stjórnarkona í KRFÍ.
  • 15:00  Umræður.
  • 15:45  Veitingar bornar fram í samkomusal Hallveigarstaða við Túngötu.

Fundarstjóri er Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, aðstoðarorkumálastjóri.

Málþingið er öllum opið