Jólafundur Kvenréttindafélagsins fimmtudaginn 8. desember kl. 20

jolafundur_2016

Velkomin á jólafund Kvenréttindafélagsins og Kvennasögusafnsins fimmtudaginn 8. desember kl. 20 á Hallveigarstöðum, Túngötu 14.

Vigdís Grímsdóttir les úr ævisögunni Elsku Drauma mín, Þórdís Gísladóttir les upp úr ljóðabókinni Óvissustig og Þórey Mjallhvít les upp úr teiknimyndabókinni Ormhildarsaga.

Einnig kemur fram hljómsveitin RuGl sem tekur nokkur lög.

Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kvenréttindafélagsins og Rakel Adolphsdóttir forstöðumaður Kvennasögusafnsins ávarpa fundinn.

Velkomin í kaffi og kökur! Sjáumst í jólaskapi!

Vinsamlegast hafið samband á netfang postur@kvenrettindafelag.is fyrir 5. desember næstkomandi ef óskað er eftir táknmálstúlkun. Lyfta sem hefur burðargetu fyrir allt að 225 kg er á staðnum.