Kvenréttindafélag Íslands efnir til ljóðahátíðar 2. og 3. júlí næstkomandi í samstarfi við Meðgönguljóð. Titill hátíðarinnar er „Konur á ystu nöf.“
Bókmenntahátíðinni er ætlað að byggja brú milli skáldkvenna á jaðarsvæðum Norðurlandanna, þeim þjóðum sem taka þátt í norrænu samstarfi en hafa ekki að móðurmáli „kjarnamálin“ þrjú, dönsku, norsku og sænsku.
Tvær skáldkonur frá vestnorræna málsvæðinu heimsækja hátíðina, Katti Frederiksen frá Grænlandi og Vónbjørt Vang frá Færeyjum. Austan megin úr álfunni, frá Finnlandi, koma Juuli Niemi og Vilja-Tuulia Huotarinen. Ásamt erlendu gestunum mæta til leiks íslensku skáldkonurnar Arngunnur Árnadóttir, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, Björk Þorgrímsdóttir og Valgerður Þóroddsdóttir.
Miðvikudaginn 2. júlí munu skáldin dreifa sér í fjögur bókasöfn í borginni, tvö í hvert safn. Upplesturinn byrjar kl. 17:00.
Fimmtudaginn 3. júlí verður dagskrá í Safnahúsinu (gamla Þjóðmenningarhúsinu), með upplestrum og pallborðsumræðum. Pallborðsumræður fara fram á ensku. Ljóð eru lesin á frummálinu en íslenskar þýðingar af ljóðunum verður varpað á vegg meðan á lestri stendur. Veitingar eru veittar og er aðgangur ókeypis.
Í tilefni hátíðarinnar munu Meðgönguljóð gefa út safnrit með ljóðum eftir öll skáldin, bæði á frummáli og í íslenskri þýðingu.
Dagskrá
Miðvikudagur 2. júlí: Upplestrar í bókasöfnum
17:00 Aðalsafn
Vónbjørt Vang
Bergrún Anna Hallsteinsdóttir
17:00 Ársafn
Juuli Niemi
Björk Þorgrímsdóttir
17:00 Foldasafn
Vilja-Tuulia Huotarinen
Valgerður Þóroddsdóttir
17:00 Sólheimasafn
Katti Frederiksen
Arngunnur Árnadóttir
Fimmtudagur 3. júlí: Dagskrá í Safnahúsinu (gamla Þjóðmenningarhúsinu)
17:00 Vilja-Tuulia Huotarinen les ljóð
17:15 Pallborð: Landslag fyrir vestnorrænar skáldkonur
17:45 Juuli Niemi les ljóð
18:00 Súpa og aðrar veitingar
18:15 Vónbjørt Vang les ljóð
18:30 Pallborð: Til hvers að semja ljóð?
19:00 Katti Frederiksen les ljóð
Allar pallborðsumræður fara fram á ensku.
Konur á ystu nöf — Sumarhátíð Meðgönguljóða er styrkt af Hlaðvarpanum: Menningarsjóði kvenna á Íslandi, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Menningarsjóði Íslands og Finnlands, Reykjavík – Bókmenntaborg UNESCO og Vestnorræna sjóðnum.